Hinn mikli Gatsby (The Great Gatsby) fjallar um hinn unga og dularfulla Jay Gatsby og gerist sumarið 1922 í New York. Bókin er ein af mikilvægustu bókmenntaverkum Bandaríkjanna og nú er kvikmynd eftir bókinni komin í íslensk kvikmyndahús.
Bókin er til í öllum söfnum Borgarbókasafnsins, á bæði íslensku og ensku.
Á laugardaginn kl. 15 opnar myndasögusýning í aðalsafni þar sem sýndar verða myndir sem sendar voru inn í myndasögusamkeppni Borgarbókasafnsins og Myndlistaskólans í Reykjavík.
Yfir 50 myndasögur og myndir bárust í samkeppnina, en í ár var tekin upp sú nýbreytni að keppa í þremur aldurshópum: 10-12, 13-16 og 17-20+ og eru verðlaun veitt í hverjum aldurshópi.
Það er haust í Reykjavík. Alexander er hættur í menntaskóla og vinnur á kókbílnum. Vinnan er ömurleg, bílstjórinn óþolandi og það eina sem gerir vinnudaginn bærilegan er tilhugsunin um stefnumótið við Védísi um kvöldið – bíóferð og kannski eitthvað meira … vonandi. En aldagömul öfl eru á sveimi, óvænt atburðarás fer í gang og fyrr en varir leynast hættur við hvert fótmál.
Það er ekki oft sem skrifaðar eru unglingafantasíur sem gerast í samtímanum í Reykjavík. Úlfshjarta er þannig bók og sver sig í ætt við sögur eins og Hungurleikana og Twilight. Bókinni hefur verið mjög vel tekið af lesendum og það er óhætt að mæla með henni!
P.S. Það þarf ekki að taka það fram að Úlfshjarta er til á næsta Borgarbókasafni ;)
Hvernig verður saga til? Hvaða saga er merkileg? Á hverju byrjar maður og hvernig endar maður? Er ég fyndnari en ég held? Hef ég eitthvað stórmerkilegt fram að færa - eitthvað sem vill komast út?
Fáðu svör við þessum spurningum í ritsmiðju Sköpunarskólans og Borgarbókasafnsins laugardaginn 27. apríl.
Viltu verða myndasöguhöfundur? Taktu þá þátt í Myndasögusamkeppni Borgarbókasafnsins og Myndlistaskólans í Reykjavík! Skilafrestur er til 2. maí. Sjá nánar hér…